Vetrarfærð?

Nú veit ég ekki hvernig ástandið á Jótlandi er, en ég bý í miðri Kaupmannahöfn og hér er í mesta lagi 5 cm snjóbreiða (en 3 cm væru nærri lagi) og enginn snjór á götunum. Ég heyrði þó frá vinkonu minni sem býr einnig hér í borg að það hefði tekið hana rúma 2 tíma að komast í skólann með strætó, leið sem tekur yfirleitt í kringum 45 mínútur. Umferðin virðist lamast við örlitla snjókomu og sem Íslendingi, sem er nú ýmsu vanur hvað færð og veður varðar, finnst manni þetta nú dálítið broslegt. Ég held það yrði nú eitthvað hlegið ef björgunarsveitir væru kallaðar úr í svona veðri heima.
En hver veit, kannski er vetrarfærðin meiri á öðrum stöðum á landinu.
mbl.is Vetrarfærð í Danmörku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gyllenhaal í 66°Norður

Gaman að sjá Jake Gyllenhaal í jakka frá 66°North. Íslenskar útivistavörur (66°North og Cintamani) ættu að eiga alla möguleika á því að njóta velgengni á erlendum mörkuðum. Eftir heimsókn á heimasíðu 66°North komst ég að því að fyrirtækið er með verslanir mun víðar en ég hélt. Flott hjá þeim og áfram Ísland!
mbl.is Sambandsslit hjá Witherspoon og Gyllenhaal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta eitthvað grín...

...mér finnst Jóhanna ekki eiga þessa tilnefningu skilið. Hvað hefur hún gert á þessu ári sem er svo stórkostlegt að hún sé í kjölfarið útnefnd kona ársins. Tjah, ekkert í mínum bókum sem ég man eftir. Hennar tími er löngu liðinn og var ég nú að vonast til þess að hún væri búin að átta sig á því fyrir löngu síðan.
mbl.is Jóhanna valin kona ársins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áhugavert!

Ég bý í Kaupmannahöfn og ég get alveg trúað því að borgin sé sú umhverfisvænasta þegar kemur að takmarkaðri notkun bíla hér í borg. Það er meira að segja bölvað vesen að vera á bíl hérna.

Mig langar hins vegar að benda á það að hvergi annars staðar í heiminum hef ég séð jafn mikið magn auglýsingablaða og snepla hrúgast inn um lúguna hjá manni. Það virðist sem svo að Danir séu mjög uppteknir af öllu sem að tengist umhverfinu (eða 'klima') þessa dagana, en hvernig væri bara að byrja á byrjuninni og hætta að bera út auglýsingar á pappísformi í kílóavís í hverri viku. Það væri ágætis byrjun!
Heima ber ekki jafn mikið á þessum blaðasneplum og eru verslanir mun duglegri að nýta sér umhverfisvænari miðla líkt og internetið. Danir eru nokkrum skrefum á eftir okkur hvað þetta varðar.

Fleira var það nú ekki í bili.


mbl.is Kaupmannahöfn umhverfisvænust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sellóið fær að vera í friði... í bili a.m.k.

Eins og ég er ánægð með að Ísland komst áfram í keppninni, þá var ég nú hálfpartinn farin að hlakka til þess að sjá Sigmar éta sellóið! Hann var nú orðinn frekar órólegur karlinn þegar einungis eitt umslag var eftir og nafn Íslands hafði ekki enn birst á skjánum. Gaman að þessuSmile

Nú getum við Íslendingar fagnað og gert okkur glaðan dag á laugardaginn, eins og okkur einum er lagið!


mbl.is Ísland komið áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jibbí...

...er það sem ég hef um þetta mál að segja!

Nú geta ráðamenn þjóðarinnar loksins einbeitt sér fyllilega að þeim vanda sem er til staðar hér heima, eða það vona ég að minnsta kosti.

Ég fór í námsferð til New York og Washington núna í vor með 2. og 3. árs nemendum í stjórnmálafræði og þess má geta að við heimsóttum fastanefnd Íslands hjá SÞ og Sameinuðuþjóðirnar sjálfar. Þegar við vorum þarna í byrjun mars var bjartsýnin í hámarki og manni fannst litla landið Ísland virka mun stærra heldur en maður á að venjast. Eftir ferðina áttu nemendur svo að skrifa ritgerð um eitthvað sem tengdist ferðinni og þeim stofnunum og fyrirtækjum sem við heimsóttum. Ég ákvað að skrifa um framboð Íslands til Öryggisráðsins. Það reyndist hægara sagt en gert að móta sér skoðun á því hvort að framboðið væri vænlegt fyrir litla Ísland eður ei. Mig minnir að ég hafi farið einhvern milliveg, en það læddist að manni sá grunur að þetta væri hreinlega of stór og mikill pakki fyrir land og þjóð og þá sérstaklega þegar kostnaðaráætlun vegna framboðsins var skoðuð.

Nú hlakka ég bara til að horfa á ávarp Geirs Haarde eftir u.þ.b. 7 mínútur og sjá hvað karlinn hefur að segja.

 


mbl.is Ísland náði ekki kjöri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikið er ég glöð...

...að einhver sé farinn að hugsa um hagsmuni annarra íþróttagreina og banna þetta bölvaða harpix. Harpix er svo klístrað að það festist við gólf og aðra húsmuni og skapar hættu fyrir íþróttafólk sem kemur inn í íþróttasalina á eftir handboltaliðunum. Austurberg er eitt af þeim íþróttahúsum sem hefur hingað til verið á kafi í Harpix og þykir fæstum blakmönnum gott að spila þar (tek það sem dæmi, þar sem ég spila blak). Þegar við Þróttarar keppum við HK þá þarf oft að skúra gólfið þar oftar en einu sinni áður en við getum komist inn á gólfið vegna klístursins á gólfinu.

Einna verst finnst mér að horfa upp á alla fimleikakrakkana í Stjörnunni sem æfa berfætt og eiga það á hættu að stíga í Harpixklessur á gólfinu. Það er ekki smekklegt. En blessunarlega nær starfsfólk að þrífa Ásgarð mjög vel eftir handboltaleiki.


mbl.is Vandi út af harpixbanni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kosningar til Stúdentaráðs...

Í dag er kosið til Stúdentaráðs í Háskóla Íslands... ég sat sem fastast heima og kaus ekki, er reyndar með slæma kvefpest... en maður hefði nú kannski getað staulast niðrí skóla og skilað auðu. Ég er neflinlega ein af fáum stúdentum sem hef engan áhuga að taka þátt í þessum sandkassa - og gervistjórnmálaleik. Ef ég vildi taka þátt í stjórnmálum, þá eru ungliðahreyfingar stjórnmálaflokkanna kjörnar til þessa... en ekki hagsmunabarátta allra stúdenta. Mér finnst ekki í lagi að þar séu stríðandi fylkingar að berjast um hylli stúdenta.

Ég læt hérna fylgja með athugasemd sem ég setti inn á bloggfærslu Málsvara og lýsir hún skoðun minni ágætlega.

Einn stærsti gallinn er einnig sá að stúdentar sjá sér ekki fært að vinna saman að hagsmunamálum stúdenta, heldur skiptir fólk sér í fylkingar og lætur pólitískar skoðanir sínar oft á tíðum hafa of mikil áhrif. Hvers vegna geta þeir sem koma að stúdenta'pólitikinni' ekki sýnt þroska og starfað saman sem ein heild, með þeim hætti er mun líklegra að eitthvað komist í verk heldur en þegar stríðandi fylkingar takast á. Hvergi í öðrum Háskólum á landinu tíkast þetta fyrirkomulag sem er í Háskóla Íslands, þar eru einstaklingskosningar og fólk tekur höndum saman og vinnur SAMAN að því markmiði að bæta hag stúdenta. Sjálf hef ég stundað nám í öðrum háskóla en HÍ og hef ágætis samanburð. Ég efa það stórlega að rekstrarform Háskóla Íslands hafi áhrif á þann hátt sem hafður er á Stúdentafélagsmálum, þó svo rekstrarformið hamli skólanum verulega á mörgum öðrum sviðum.

Sjálf er ég nemandi í HÍ og er orðin þreytt á því að labba um ganga skólans og fá partýboðskort og boð um ókeypis veigar frá þeim fylkingum sem eru innan háskólans, svo ekki sé talað um símhringingar á ótrúlegustu tímum. Það hlýtur að vera til annar og betri vettvangur til þess að æfa sig í stjórnmálaþátttöku (sjálf er ég í námi í stjórnmálafræði), heldur en vettvangur stúdenta í Háskólanum... til dæmis ungliðahreyfingar stjórnmálaflokkanna.

 


Pabbi minn er bestur!

Þessu er ég hjartanlega sammála. Ég er alveg handviss um að pabbi minn hafi haft heilmikil áhrif á mig og mitt makaval. Það vill svo skemmtilega til að pabbi og Bjössi eiga afmæli með eins dags millibili, 16. og 15. mars og þar af leiðandi í sama stjörnumerkinu. Það eitt segir nú kannski ekki mikið, en ég og pabbi höfum í gegnum tíðina verið perluvinir og skemmt okkur vel saman. Mamma mín og pabbi eru gift, þannig að ég hef ekki þurft að ganga í gegnum skilnað né neitt svoleiðis. Ég tel mig mjög heppna að því leyti.

Mér finnst ég oft finna fyrir því að börn foreldra sem eru ekki saman séu almennt rótlausari heldur en ella og er ég nokkuð viss um að ég væri ekki sami karakterinn ef ég hefði ekki fengið að njóta þess alla tíð að vera í kringum pabba minn.


mbl.is Feður geta haft áhrif á makaval kvenna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hræðilegt

Mikið er ljótt að sjá alla þess glæpi sem framdir eru sökum trúar og hefða. Í Bretlandi er fjöldinn allur af innflytjendum og því kemur það kannski ekki á óvart að svona lagað eigi sér stað þar í landi. Þrátt fyrir það er þetta háalvarlegt og mjög brýnt að reynt verði að sporna við glæpum sem þessum.
mbl.is Segja að sæmdarglæpum fari fjölgandi í Bretlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband