8.6.2007 | 16:19
Allt er vænt sem vel er grænt...
Grænt blóð... það kalla ég nú töff!!! Alveg er ég viss um að karlinn sé geimvera í felum á jörðinni.....NOT (*borat style*)
Ég var í blóðprufu í fyrradag og það vildi ekki betur til en að hjúkkan fann æð hjá mér, var komin inn í hana en æðadruslan vildi bara ekki svara og láta dæla úr sér... þetta hafði í för með sér alls kyns pot og þreifanir með nálina ennþá í hendinni og það var alls ekki gott skal ég segja ykkur. Það hefði nú verið ágætis grín ef grænt blóð hefði runnið úr æðum manns á þeirri stundu. Mér hefði a.m.k. verið skemmt!
Annars var dr. Spock alveg mega svalur gaur! Þættirnir voru samt aðeins fyrir mína tíð, en ég horfði á þá þætti sem síðar komu... hvort það hafi verið Star Trek þættirnir. Það var allavega fastur liður í barnæsku minni að setjast niður fyrir framan imbann og horfa á geimverurnar, líf þeirra og tilveru í geimstöðvum alheimsins. Good times!
Blæddi grænleitu blóði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.